Svona líta Mottumars sokkarnir út

Rakel Sólrós Jóhannsdóttir og Þórdís Claessen hönnuðu sokkana.
Rakel Sólrós Jóhannsdóttir og Þórdís Claessen hönnuðu sokkana. Ljósmynd/Samsett

Mottumars er hafinn. Yfirskrift átaksins í ár er „Ekki humma fram af þér heilsuna“ og vísar til þess að nýleg rannsókn Krabbameinsfélagsins sýndi fram á að karlmenn sem greindust með krabbamein eftir að hafa fundið fyrir einkennum biðu margir í langan tíma með að leita til læknis.  

Fatahönnuðurinn Rakel Sólrós Jóhannsdóttir og grafíski hönnuðurinn Þórdís Claessen hönnuðu Mottumars sokkana í ár en þær starfa hjá íslenska fyrirtækinu 66°Norður. 

„Það var ótrúlega gaman að fá tækifæri til að hanna Mottumars sokkana í ár í samstarfi við kollega minn Þórdísi Claessen og í nánum samskiptum við Krabbameinsfélagið. Við fengum ákveðna litapallettu og leituðum í ríka sögu 66°Norður fyrir innblástur. Með hönnuninni vildum við gera sjómanninum og hafinu hátt undir höfði með fallegu mynstri af öldum í mörgum bláum tónum,“ segir Rakel Sólrós. 

Þórdís segir að þær hafi fengið innblásturinn úr hafinu en 66°Norður var stofnað á Suðureyri við Súgandafjörð 1926.

„Þetta er okkar erfðaefni og grunnur fyrirtækisins. Þetta er okkur mjög hugleikið og það er ákveðinn kraftur í sjónum. Við höfum dregið upp úr sjónum okkar lífsbjörg,“ segir Þórdís sem er grafískur hönnuður. Rakel er hinsvegar fatahönnuður. „Innblásturinn kom auðveldlega til okkar, varðandi okkar sögu og hvernig sjórinn tengist þar inn í er eins eðlislægt og fyrir hvern annan Íslending,“ segir Þórdís. 

Litirnir í sokkunum eru í takt við íslensku fánalitina en aðaláherslan var á bláu tónana til þess að ná betri tengingu við sjóinn. Á sokkunum er rauður hæll en hann táknar rauðu baujuna sem vísar sjómönnum veginn. 

„Þegar við sjáum baujuna vitum við að við erum á réttum stað. Þetta er áminningin fyrir okkur að halda utan um heilsuna,” segir Þórdís.  

Mottumars sokkarnir eru í grunninn í íslensku fánalitunum.
Mottumars sokkarnir eru í grunninn í íslensku fánalitunum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál