Óþekkjanleg eftir umdeilda „fox eye“ aðgerð

Mollie Salmon tók þátt í raunveruleikaþáttunum Love Island á síðasta …
Mollie Salmon tók þátt í raunveruleikaþáttunum Love Island á síðasta ári. Samsett mynd

Love Island-stjarnan Mollie Salmon afhjúpaði á dögunum nýtt útlit eftir að hafa flogið til Tyrklands í byrjun maí til að gangast undir svokallaða „fox eye“ lýtaaðgerð.

Hún deildi ferlinu með fylgjendum sínum á TikTok, en aðdáendur hennar tóki misvel í nýja útlitið og vildu meina að hún hefði „eyðilagt“ andlitið á sér. 

Eins og sjá má í myndskeiðinu voru augu Salmon mjög bólgin fyrsta sólahringinn eftir aðgerðina. Hún viðurkenndi að hún ætti í erfiðleikum með að sjá og sagði bataferlið vera langt ferðalag. 

@molliesalmon_ Fox eye surgery recovery, the healing process is a journey 😭 #foxeyesurgery #surgery #monoclinic #aesthetics ♬ orijinal ses - EROL
@molliesalmon_ Come and get fox eye surgery with me 🦊👁️ i cant wait to see the healed results 😍 #foxeyesurgery #surgery #aesthetics ♬ Do It Better - Beachcrimes & Tia Tia

Svaraði gagnrýninni á TikTok

Aðgerðin sem um ræðir hefur verið umdeild, en hún gefur einstaklingum meira möndlulaga augu sem þykir eftirsótt um þessar mundir.

Nokkrum vikum eftir aðgerðina virtust augun Salmon hafa jafnað sig, en hún afhjúpaði nýja útlitið í TikTok myndskeiði með yfirskriftinni: „POV: Að lesa í gegnum allar athugasemdirnar sem segja að ég hafi eyðilagt andlitið á mér með „fox eye“ aðgerð.“

@molliesalmon_ The fox eye face reveal you’ve all been waiting for 🦊👁️ #yourfavblondegirl #foxeyesurgery #foxeyesurgeryfacereveal #fypシ ♬ original sound - Capital



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál