Stóri dagurinn er runninn upp og allir gestir samankomnir til að fagna ástinni. Gleðin, rómantíkin og útgeislunin skín ekki einungis af brúðhjónunum heldur öllum gestum og gangandi í brúðkaupinu. Brúðhjónin eru í sínu fínasta pússi en hvað þurfa gestirnir að hafa í huga áður en þeir mæta til að fagna ástinni?
1. Framúrskarandi húðumhirða Mundu að húðumhirða leggur grunninn að fallegri förðun. Það skiptir því máli að nota réttar vörur til að líta sem best út. Þetta á reyndar ekki bara við um brúðkaupsgesti heldur bara almennt í lífinu. Ef húðin er vel undirbúin verður áferðin á húðinni og förðunin sjálf alltaf fallegri. Fyrsta skrefið er að byrja strax að þrífa húðina kvölds og morgna og drekka nóg af vatni.
2. Raki og meiri raki! Ef húðin á að vera upp á sitt besta þarf að næra hana vel. Það er ekki nóg að hreinsa hana bara kvölds og morgna. Byrjaðu að því að djúpnæra húðina með góðum rakamaska.
3. Ekki gleyma seruminu! Serum læsir rakann í húðinni og gerir að verkum að húðin ljómar meira en nokkru sinni fyrr.
4. Rakavatn breytir vatni í vín! Rakavatn veitir húðinni aukna fyllingu og tryggir að allar aðrar húðvörur fari dýpra í húðina, sem gerir áferð farðans fallegri.
5. Notaðu farðagrunn! Farðagrunnur er ekki síður mikilvægt skref í rútínunni en hann getur komið í veg fyrir að förðunin fari á hreyfingu eða smitist í föt. Hann er svona eins og lím sem heldur öllu á sínum stað.
6. Kremaðar vörur fyrst! Til að förðun haldist betur á er góð þumalputtaregla að nota kremaðar vörur fyrst og setja svo púðurvörur yfir. Með þessu trixi situr förðunin betur og endist lengur.
7. Vertu með púður í veskinu! T-svæðið getur farið að glansa þegar tilfinningarnar bera fólk ofurliði. Þá er nauðsynlegt að vera með púður í veskinu og dúmpa örlítið yfir. Svo er gott trix að setja örlítið púður undir augun ef hyljarinn fer eitthvað að hreyfast til.
8. Skotheldar varir! Ef varaliturinn á að haldast á sínum stað er gott að setja varalitagrunn á varirnar. Góður varalitagrunnur gerir það að verkum að varaliturinn smitast ekki í allar áttir.
9. Njóttu þess að ilma! Ilmur setur punktinn yfir i-ið. Lyktarskynið er magnað og því hægt að hugsa til baka til þessa fallega dags með því að ilma alltaf eins og brúðkaupsdagurinn!