Huldi varla það allra heilagasta

Leikkonan Julia Fox þekkt fyrir óhefðbundinn stíl.
Leikkonan Julia Fox þekkt fyrir óhefðbundinn stíl. AFP/Jamie Mccarthy

Leikkonan Julia Fox er þekkt fyrir að stela sviðsljósinu á rauða dreglinum enda óhrædd að fara sína eigin leiðir þegar kemur að tísku. Fox er hrifin af mjög óhefðbundnum stíl og klæðir sig gjarnan í ögrandi, undarlegar og efnislitlar flíkur. 

Leikkonan, sem er þekktust fyrir ástarsamband sitt við umdeilda rapparann Kanye West, vakti mikla athygli nærstaddra á þriðjudag þegar hún mætti nánast nakin á tískusýningu PrettyLittleThing í New York.

Fox var íklædd bikiní-setti úr einhvers konar málmblöndu sem huldi aðeins það allra heilagasta og leðurkápu sem minnti helst á atriði úr The Matrix. 

Leikkonan, 33 ára, stillti sér upp fyrir framan ljósmyndara á svarta dreglinum fyrir utan veitingahúsið Cipriani Downtown sem er staðsett í hjarta Soho. 

Leikkonan fór með hlutverk í kvikmyndinni Uncut Gems frá árinu …
Leikkonan fór með hlutverk í kvikmyndinni Uncut Gems frá árinu 2019. AFP/Dimitrios Kambouris
Moxie Raia og Julia Fox.
Moxie Raia og Julia Fox. AFP/Dimitrios Kambouris
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda