Hvernig væri að dusta rykið af þinni innri Ölmu Möller?

Alma Möller landlæknir hressti landsmenn við með klæðaburði sínum á …
Alma Möller landlæknir hressti landsmenn við með klæðaburði sínum á meðan kórónuveiran geisaði sem mest. Hvernig væri að hugsa til hennar þegar þú velur þér klæðnað dagsins? Samsett mynd

Haustið kallar á nýtt útlit, nýjan takt og nýja litapallettu. Ef þú vilt gera eitthvað nýtt og ferskt gætirðu prófað að blanda saman rauðum og beige og lagt niðurmjóu buxurnar með gulrótarsniðinu til hliðar og fengið þér útvíðar í staðinn. Síð gallapils eru líka komin aftur í móð hvort sem þér líkar betur eða verr.

Leðurpils og peysa frá Boss. Takið eftir hvað rauðir skór …
Leðurpils og peysa frá Boss. Takið eftir hvað rauðir skór fara vel við beige-lituð föt.

Þegar hausta tekur koma brúnir, grænir og beige-litir tónar oft við sögu. Það sem er öðruvísi núna er að þessir litir eiga helst að flæða yfir allt. Það þýðir að neðri hluti og efri hluti eiga helst að vera í sama lit og ekki er verra ef yfirhöfnin tónar við litapallettuna þannig að litaflæðið sé eins og ferskur andblær á heitum sumardegi. Nema kannski ef liturinn sem þú blandar við sé rauður. Rauði liturinn er með innkomu í hausttískuna sem hressir okkur við. Kannski áttu rauðan bol í fataskápnum sem passaði aldrei við neitt en núna passar hann við allt - nú eða rauða skó. 

Þessi kjóll er frá Boss.
Þessi kjóll er frá Boss.

Það væri svo auðvelt að segja að tískustraumar haustsins væru allir í anda 1990 og aldamótanna. Það er þó ekki alveg þannig því það sjást áhrif frá mörgum fyrri tískutímabilum. Það má sjá merki frá sjöunda og áttunda áratugnum. Aldamótatískan kemur sterk inn með sínum síðu pilsum og buxum og fatnaði með hermannasniði. Öll glansandi efnin minna líka á tísku aldarmótanna þegar Guðjón í Oz hélt geggjuð þemapartí og gosbjór þótti það ferskasta sem hægt var að setja inn fyrir varir sínar.

Hér má sjá flíkur sem hefðu getað verið í fataskáp …
Hér má sjá flíkur sem hefðu getað verið í fataskáp þeirra sem voru upp á sitt besta um aldarmótin. Sítt brúnt gallapils úr Gallerí 17, þröngur kjóll frá Zara og stuttbuxur og ermalaus toppur frá frk.is. Samsett mynd
Þessi kjóll er frá Skims sem er fatamerki Kim Kardashian. …
Þessi kjóll er frá Skims sem er fatamerki Kim Kardashian. Slíkur kjóll fer vel undir stóran jakka.

Stórir jakkar

Stórir og víðir jakkar eru áberandi í tísku haustsins en hvernig á að nota þá án þess að líta út fyrir að vera í fötum af pabba þínum? Jú, þú ferð í víðan jakka við síðar útvíðar buxur eða ferð í eitthvað þröngt undir. Skims-kjólar Kim Kardashian passa til dæmis mjög vel innanundir stóra og mikla jakka. Það má líka klæðast þröngum buxum og þröngum topp undir jakkanum. Það skiptir hins vegar máli að jakkarnir séu vel sniðnir þótt þeir séu stórir. Þeir þurfa að passa á þig og svo má alltaf hafa bak við eyrað að það má breyta fötum. Það má þrengja víða jakka örlítið í mittið til þess að gera þá kvenlegri.

Stórir jakkar eru áberandi. Þessi dragt fæst í Vero Moda.
Stórir jakkar eru áberandi. Þessi dragt fæst í Vero Moda.

Bolir með gati

Eitt af því sem er áberandi í tískunni núna eru bolir, kjólar og toppar með gati yfir bringuna. Sísí Ingólfsdóttir klæddist slíkum bol á dögunum þegar hún opnaði sýningu á verkum sínum. Sísí fékk landsmenn til þess að langa í útsaumað verk með sniðugum setningum sem settu fókusinn á hvað manneskjan getur verið mikill plebbi á köflum. Það voru margir sem þráðu að afplebbast því verkin ruku út á núll-einni.

Dragt með axlarpúðum fæst í Ungfrúnni góðu.
Dragt með axlarpúðum fæst í Ungfrúnni góðu.

Axlarpúðar fyrir fólk í jafnvægi

Svo eru það axlapúðarnir – ekki gleyma þeim. Fólk sem gengur ennþá til sálfræðings vegna áfallastreituröskunar sem skrifast á allt of stóra axlapúða sem fóru á flakk og voru skyndilega dottnir niður á bak eða maga er líklega ekki að fara að kaupa sér jakka eða kápu með risaaxlapúðum en yngri kynslóðir munu eflaust stökkva á vagninn. Smá axlapúðar geta verið góð hugmynd ef efri hluti fólks er rýr og fólk vill fá valdsmannslegra útlit. Þeir geta líka gert heildarmyndina tignarlegri. Eina leiðin til þess að komast að því hvort jakki með axlapúðum sé góð eða slök hugmynd er að máta. Og máta svo aftur.

Hermmanlegt vesti fæst Hjá Hrafnhildi.
Hermmanlegt vesti fæst Hjá Hrafnhildi.

Þegar fólk er að venjast nýjum tískustraumum þarf að gefa sér tíma. Ekki hlaupa inn í næstu búð og kaupa bara eitthvað. Einn af heitustu tískustraumum haustsins er nefnilega að fara vel með peninga. Það er fjárfesting að kaupa vönduð og góð föt en það er ekki fjárfesting ef dýru fötin eru keypt í flýti til þess að fylla upp í hjartasárin sem eru að fara með okkur í gröfina. Þá er betra að nota peningana til þess að fara í handleiðslu. Þegar fatastíll og tíska eru til umræðu gleymist oft að minnast á að slíkt prjál er ekki samkvæmisleikur hinna illa gefnu. Rannsóknir sýna að fólki sem leggur metnað í klæðaburð sinn vegnar betur á vinnumarkaði og fær hærri laun.

Kjóll með hermannalegu sniði fæst í Next.
Kjóll með hermannalegu sniði fæst í Next.

Það er einmitt vegna þessara rannsókna sem fólk í framlínunni ræður sér stílista til að setja saman fataskáp til þess að vera sem flottast. Það eru nefnilega ekki allir jafnklárir og Alma Möller landlæknir sem töfraði fram hvert dressið á fætur öðru á ákveðnu tímabili sem þessi þjóð vill helst gleyma.

Útvíðar gallabuxur eru áberandi í vetrartískunni. Þessa fást í Mathilda.
Útvíðar gallabuxur eru áberandi í vetrartískunni. Þessa fást í Mathilda.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

félags- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál