Brjóstin voru áberandi á brúðkaupsdaginn

Amurri hefur verið dugleg að deila færslum sem sýna frá …
Amurri hefur verið dugleg að deila færslum sem sýna frá brúðkaupsdeginum. Samsett mynd

Eva Amurri, dóttir leikkonunnar Susan Sarandon og leikstjórans Franco Amurri, gekk í hnapphelduna í annað sinn um helgina. Amurri, sem fetaði í fótspor móður sinnar og starfar sem leikkona, giftist matreiðslumanninum Ian Hock í fallegri athöfn í Hudson Valley í New York-ríki yfir helgina.

Amurri, sem klæddist fallegum brúðarkjól eftir hönnuðinn Kim Kassas, fékk á sig töluverða gagnrýni eftir að myndir úr brúðkaupinu birtust á síðum People og á samfélagsmiðlum. 

Netverjar létu þung orð falla um klæðaburð brúðarinnar og voru margir sammála um að brúðarkjóllinn hefði verið of lágur yfir brjóstasvæðið, en kjóllinn sem Amurri klæddist er með svokallað „low-cut neckline“. 

Amurri gaf lítið fyrir gagnrýni netverja og birti færslu á Instagram Story á mánudag þar sem hún hvatti fólk til að taka skjáskot af brjóstum sínum enda ekki á hverjum degi sem slíkt tækifæri gefst.

View this post on Instagram

A post shared by People Magazine (@people)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda