Nammigrísir gætu fagnað nýrri peysu frá Hugleik

Eru umbúðir Draums klassísk hönnun? Peysan er framleidd í takmörkuðu …
Eru umbúðir Draums klassísk hönnun? Peysan er framleidd í takmörkuðu upplagi og fæst á Dagsson.is og í pop up versluninni Vetrar Vondalandi í Gallery Hafnartorgi.

Fyrir þau sem halda mikið upp á íslenska súkkulaðistykkið Draum fagna eflaust nýrri peysu úr smiðju grínistans Hugleiks Dagssonar. Nýja fatamerkið hans, Umbúðir, hefur framleitt Draumapeysu í samstarfi við Freyju súkkulaði.

Hönnunin á umbúðum lakkrísdraumsins er klassísk vöruhönnun frá árinu 1984. „Þrátt fyrir að flestum sem eru að nálgast miðaldra finnist 1984 hafa verið fyrir tuttugu árum síðan þá fagnar í raun Draumur 40 ára afmæli í ár,“ segir í fréttatilkynningu.

Umbúðirnar eru áhugaverð blanda af mynstri sem einhverjir myndu segja væri klassík. Fatamerkið Umbúðir fagnar þessari nostalgíu sem fylgir klassískri íslenskri vöruhönnun og hefur nú þegar verið gefin út Opal-peysa og Nýmjólkurpeysa.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda