Steldu stílnum af Kristínu Gunnarsdóttur

Bolurinn er frá sænska fatamerkinu Rodebjer.
Bolurinn er frá sænska fatamerkinu Rodebjer. Samsett mynd/Árni Sæberg

Eddu-verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Hilton-hótelinu á dögunum. Kynnar kvöldsins voru þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir sem halda úti vinsæla hlaðvarpinu Komið gott. Vinkonurnar hafa verið vinsælar sem kynnar eða veislustjórar í alls konar viðburðum og hópefli fyrirtækja undanfarna mánuði.

Bolur Kristínar vakti mikla athygli fyrir þær sakir að þetta er flík sem marga langar að eiga í fataskápnum. Litirnir eru fallegir án þess að vera æpandi en mynstrið er í svörtu, hvítu, pastel- og dökkgrænum lit. Bolurinn fer vel undir jakka, við víðar buxur og í raun hvað sem er.

Sænska fatamerkið Rodebjer er framleiðandi toppsins en merkið er mjög vinsælt hér á landi. Nú fæst það í versluninni Andrá sem er staðsett í miðbæ Reykjavíkur.

Efnasamsetningin er 91% lífræn bómull á móti 9% af teygju. Hann kostar 15.900 kr.

Ekki ganga, hlauptu!

Bolurinn kostar 15.900 krónur og er frá sænska fatamerkinu Rodebjer.
Bolurinn kostar 15.900 krónur og er frá sænska fatamerkinu Rodebjer.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda