Sagði upp hjá Louis Vuitton og hannaði eigin línu

Sóley sagði upp draumastarfinu til að hanna sína eigin fatalínu …
Sóley sagði upp draumastarfinu til að hanna sína eigin fatalínu sem hún kynnir á Hönnunarmars. Ljósmynd/Úr einkasafni

Sleepwalker er fyrsta lína íslenska fatahönnuðarins Sóleyjar Jóhannsdóttur sem er unnin út frá hugmyndum hennar að svefngöngu og hvernig tískan getur fangað hughrif þessa draumkennda ástands. Sóley sagði starfi sínu hjá Louis Vuitton lausu og hefur verið búsett í höfuðborg tískunnar, París, síðustu ár. Hún fann samt innra með sér að hana langaði að búa til sitt eigið og ákvað að nú væri rétti tíminn.

„Innblásturinn að línunni kom út frá því að ganga í svefni, náttfötum, mjúku og draumkenndu ástandi í bland við grófar yfirhafnir. Ein vinkona mín gengur í svefni og þetta hófst út frá því að hún var að segja mér frá því. Hjá henni gerist þetta þegar það er fullt tungl eða eitthvað í gangi, hún vaknar um miðja nótt og þá er kærastinn hennar að velta því fyrir sér af hverju hún er að klæða sig í buxur af honum. Mig langaði að blanda saman náttfatastíl við jakka, af kærastanum, sem eru í grófum stíl og stórir. Það var hugmyndin,” segir Sóley.

Sóley sagði upp hjá franska hátískuhúsinu Louis Vuitton í október á síðasta ári eftir fjögurra ára starf. „Mig langaði að prófa eitthvað nýtt. Það var ótrúlega gaman þarna, þetta var góður skóli og mikil reynsla,“ segir hún.

Línan er samblanda af rómantískum, draumkenndum formum og grófum yfirhöfnum.
Línan er samblanda af rómantískum, draumkenndum formum og grófum yfirhöfnum.

Má ekki fara til samkeppnisaðila

Sóley útskrifaðist úr mastersnámi í fatahönnun hjá Francaise de la Mode í París árið 2020 eftir að hafa klárað BA-nám í University of Brighton árið 2017. Hún býr yfir mikilli reynslu og hefur meðal annars starfað hjá Paul Smith, Isabel Marant og Lemaire. Árið 2021 hóf hún störf hjá Louis Vuitton og byrjaði að hanna fyrir ready-to-wear-línuna en það er sú lína sem fer beint í sölu í búðirnar. Eftir tvö ár í þeirri deild var hún færð til innan fyrirtækisins og yfir í klæðskeraliðið sem hannar fötin fyrir tískupallana.

Níu mánaða samkeppnisákvæði var í samningi Sóleyjar eins og algengt er á meðal stærstu tískufyrirtækja heims. Það þýðir að ef komi til starfsloka megi hönnuður ekki hefja störf hjá samkeppnisaðilum innan þessa tímaramma.

„Ég mætti ekki fara til Kering, Chanel eða Hermés.“

Hver segir upp hjá Louis Vuitton til að hanna sína eigin línu?

„Eftir að ég flutti út til að fara í mastersnám þá langaði mig alltaf að gera mitt eigið. Það hefur alltaf verið eitthvað sem mig langaði til að gera,“ svarar Sóley.

„En við útskrift þá var allt að detta í Covid og mér fannst mig vanta reynslu áður en ég myndi demba mér út í þetta. Ég held það sé meira þannig, þetta var alltaf í mér og markmiðið var alltaf að prófa þetta allavega. Ég ákvað að núna væri góður tími,“ segir hún.

Ertu að íhuga að flytja hingað heim?

„Eins og er þá á ég enn þá heima í París. Það væri rosalega gott að geta tekið annað gigg með þessu og unnið sjálfstætt til hliðar, það var alltaf markmiðið mitt. Bransinn er miklu stærri úti, en svo er ég mjög opin og veit ekkert hvar ég er að fara að enda,“ segir hún og hlær.

Öll efnin úr línunni eru keypt í París.
Öll efnin úr línunni eru keypt í París.
Leðrið kemur frá sömu sútunarverksmiðju og hátískuhúsið Chanel notar.
Leðrið kemur frá sömu sútunarverksmiðju og hátískuhúsið Chanel notar.
Tímarnir hjá Louis Vuitton voru lærdómsríkir.
Tímarnir hjá Louis Vuitton voru lærdómsríkir.

Allt sem þarf í seilingarfjarlægð

Sóley keypti allan textíl í línunni í París þar sem fallegustu efnabúðir heims eru staðsettar. Hún notar mikið af svokölluðum deadstock-efnum en það eru efni sem eru afgangs frá öðrum hönnuðum og tískuhúsum. Þessi aðferð er umhverfisvænni því engin ný efni eru framleidd eða keypt.

„Ef mann vantar eitthvað í París þá er búð á næsta horni. Þar eru líka margar búðir sem eru með samninga hjá stóru fyrirtækjunum eins og Louis Vuitton og Givenchy og þá eru þau efni sem ekki eru notuð í framleiðslu seld áfram. Það er skemmtilegt en það býður þó ekki upp á framleiðslu í svakalegu magni. Það hentar ef maður er að prófa litlar línur,“ útskýrir hún.

„En nú er ég að gera mikið úr leðri og það fann ég í lítilli vöruskemmu í tuttugasta hverfi. Þeir eru í sambandi við sama sútunarverkstæði og Chanel notar, eða þeir fá skinnið frá sama verkstæði. Þetta er leður sem á kannski lítið eftir af eða með pínulitlum göllum sem þeir geta ekki látið stóru húsin fá. Svo ég verslaði mikið frá þeim.“

Fötin eru framleidd á Ítalíu með verksmiðju sem vinnur með hönnuðum sem framleiða lítið magn. „Ég var svolítið stressuð í sambandi við það því ég er að framleiða lítið. Ég er í raun bara að gera prótótýpur eða prufur og hef ekki ákveðið hvort ég fari með þessa línu í framleiðslu. Ég er að vinna með fyrirtæki sem vinnur með mörgum litlum hönnuðum en aðrar verksmiðjur myndu ekki taka það í mál.“

Af hverju að sýna á Hönnunarmars?

„Mig langaði alltaf að taka þátt í senunni á Íslandi. Ég er íslensk og fæ mikinn innblástur frá Íslandi. Það er einhvern veginn allt annað, þó að það sé gott að vera staðsettur í París þegar maður er að hanna þetta þá er það allt annað dæmi þegar þú ætlar að sýna þar. Það er rosalega erfitt að komast inn á tískuvikuna í París. Victoria Beckham fékk loks samþykki fyrir að sýna þar fyrir tveimur árum eftir tíu ára umsóknarferli. En mörg lítil merki eru með svokölluð showroom eða sýningarstaði úti. Það yrði kannski næsta skref hjá mér,“ svarar hún.

„En mér finnst skemmtilegt að hafa sýninguna hér á Íslandi. Bransinn hér er opnari fyrir litlum og nýjum hönnuðum.“

Sýning Sóleyjar fer fram í Ásmundarsal næsta laugardag, 5. apríl kl. 20:00.

Louis Vuitton er eitt virtasta tískuhús heims.
Louis Vuitton er eitt virtasta tískuhús heims.
Tískubransinn úti er harður heimur og miklu færri sem komast …
Tískubransinn úti er harður heimur og miklu færri sem komast að hjá stóru tískuhúsunum.
París er háborg tískunnar en Sóley er enn búsett þar …
París er háborg tískunnar en Sóley er enn búsett þar og veit ekki hvað tekur við.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda