Bóhemskyrtur með blúndum, pífum og víðum ermum verða út um allt í sumar. Þessari tískubylgju má þakka Chemenu Kamali, listrænum stjórnanda franska tískuhússins Chloé, fyrir. Síðan hún tók við hefur hún sent ítrekað dásamlegar blússur niður tískupallana.
Þetta minnir á tísku áttunda áratugarins þar sem útvíðar buxur, klossar og Penny Lane-kápur voru aðalmálið. Það þarf hins vegar ekki að fara alveg til baka um fimmtíu ár til að taka þetta upp heldur má koma þessu hægt inn í fataskápinn.