Það fer alveg að líða að því að vetrarstígvélin fari inn í skáp þar sem þau fá að dúsa næstu mánuði. Við taka sumarlegri skór eins og ballerínur, mokkasínur eða strigaskór. Margar konur velja sér flatbotna skó þægindanna vegna en þegar það koma upp dagar þar sem strigaskórnir eru ekki nógu snyrtilegir þá er gott að eiga aðra jafn þægilega, og jafn flatbotna.
Hér eru nokkrir smekklegir flatbotna skór fyrir vorið.
Ballerínuskór frá Anine Bing, fást í Mathildu og kosta 69.990 kr.
Mokkasínur frá Copenhagen Shoes, fást í Apríl og kosta 23.990 kr.
Mokkasínur frá Bibi Lou, fást í GS Skóm og kosta 36.995 kr.
Ballerínuskór frá Kalda sem kosta 57.500 kr.
Silfraðir ballerínuskór frá Vagabond, fást í Kaupfélaginu og kosta 16.995 kr.
Skór frá Vic Matie, fást í 39 þrepum.
Ballerínuskór frá Vagabond, fást í Kaupfélaginu og kosta 24.995 kr.
Silfurlitaðir ballerínuskór frá Ganni, fást í Andrá og kosta 54.900 kr.
Hlébarðamynstraðar mokkasínur úr Zöru sem kosta 12.995 kr.
Loðnir ballerínuskór úr Zöru sem kosta 6.995 kr.