Árshátíðartíminn er fram undan sem er kjörið tækifæri til að skella sér í fínan kjól. Verslanir landsins eru með mjög mikið af fínum vorkjólum og ættu allir að geta fundið sniðið sem hentar.
Blómakjóla er hægt að nota áfram inn í sumarið og fara vel með sandölum eða grófum stígvélum. Satínkjólar eru alltaf klassískir líka þó að efnið sé mun viðkvæmara en þannig kjóla má eiga fyrir fínu tilefni sumarsins.
Hér fyrir neðan eru tíu flottir kjólar sem hæfa tilefninu.
Ljósblár kjóll frá Gestuz, fæst í Andrá og kostar 32.990 kr.
Mynstraður kjóll frá Hildi Yeoman, fæst í Yeoman og kostar 56.900 kr.
Glitrandi bolakjóll frá Just Female, fæst í Fou22 og kostar 26.900 kr.
Silfurlitaður kjóll frá Selected sem kostar 21.990 kr.
Blómamynstraður kjóll úr Zöru sem kostar 19.995 kr.
Bleikur satínkjóll úr Zöru sem kostar 7.995 kr.
Svartur rykktur kjóll frá Rabens Saloner, fæst hjá Mathildu og kostar 46.990 kr.
Blár kjóll með ermum frá Neo Noir, fæst í Galleri 17 og kostar 16.995 kr.
Mynstraður blómakjóll frá Ganni, fæst í GK Reykjavík og kostar 48.995 kr.
Blómakjóll frá Polo Ralph Lauren, fæst í Mathildu og kostar 89.990 kr.