Það er bjart yfir óskalistanum að þessu sinni. Sólin hefur mikil áhrif á líðan og fara ljósari og sumarlegri hlutir að virðast áhugaverðari. Það má bæta við flíkum í fataskápinn eða hlutum inn á heimilið og margir sem fara í ákveðna vorhreingerningu á þessum árstíma.
Það þarf hins vegar ekki mikið til að fríska upp á hlutina í kringum okkur. Eitthvað smotterí inn á heimilið eins og púðar eða keramik, ein sumarleg flík í fataskápinn eða bjartari litir í snyrtibudduna er nóg.
Hörbuxur frá Samsoe Samsoe, fást í Galleri Sautján og kosta 19.995 kr.
Naglalakk frá Chanel í litnum Poéte nr. 195.
Sólgleraugu frá A. Kjærbede, fást í Húrra Reykjavík og kosta 4.690 kr.
Perle-skál frá Seimei í ólífugrænum sem kostar 12.200 kr.
Bómullarjakki frá Gimaguas, fæst í Andrá og kostar 42.900 kr.
Satínhælaskór frá Ganni, fást í GK Reykjavík og kosta 59.995 kr.
Prjónakjóll úr Zöru sem kostar 8.995 kr.
Toppur úr gallaefni frá Closed, fæst í Mathildu og kostar 34.990 kr.
Ljósakróna úr Stockholm-línu Ikea og kostar 17.990 kr.
BB-krem frá Erborian sem kostar 7.220 kr.