Glóandi án þess að verða appelsínugul

Supple Skin Body Tanning Serum frá Azure Tan frískar upp …
Supple Skin Body Tanning Serum frá Azure Tan frískar upp á húðina og gerir hana glóandi fagra.

Ef fólk vill vera frísklegt á brúðkaupsdaginn sinn eða bara alla aðra hversdaga þá er hægt að leita ýmissa mismunandi leiða til að ná því markmiði. Eins og til dæmis að bera á sig brúnkukrem.

Förðunarfræðingar, sem farða fólk fyrir stóra viðburði í eigin lífi, eru kannski ekki yfir sig spenntir fyrir yfirgengilegri sprautulökkun. Fólk gæti átt á hættu að koma út úr brúnkuklefanum vel appelsínugult á litinn. Það að bera á sig brúnkukrem heima og vera búinn að æfa sig vel og lengi er hins vegar annað mál.

Brúnkan frá Azure Tan gefur húðinni gljáa án þess að fólk verði appelsínugult á litinn. Það er til dæmis eitursnjallt að fara í bað og bera á sig Azure Tan Smooth & Remove Tan Exfoliatina Scrub sem fjarlægir dauðar húðfrumur á mildan hátt. Þetta er hægt að gera í sturtunni eða í baðkarinu. Eftir baðferðina og þegar húðin er orðin alveg þurr er gott að setja á sig Supple Skin Body Tanning Serum. Það læsir rakann inni í húðinni og gerir hana ljómandi. Mælt er með því að fólk geri þetta daglega til að viðhalda glóandi útliti. 

Smooth & Remove Tan Exfoliating Scrub frá Azure Tan fjarlægir …
Smooth & Remove Tan Exfoliating Scrub frá Azure Tan fjarlægir dauðar húðfrumur og hjálpar húðinni að verða glóandi þegar brúnkuserumið er sett á.
Flestir þrá smá ljóma og þá gæti verið sniðugt að …
Flestir þrá smá ljóma og þá gæti verið sniðugt að bera á sig smá brúnku í brúsa.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda