Saumanámskeið sem fór úr böndunum

Anna Kristín Kristjánsdóttir, Hildur Hafstein, Svanhildur Sigurðardótitr, Anna Sigríður Arnardóttir, …
Anna Kristín Kristjánsdóttir, Hildur Hafstein, Svanhildur Sigurðardótitr, Anna Sigríður Arnardóttir, Birna Bragadóttir, Sunna Jóhannsdóttir, Björk Eiðsdóttir, Vala Garðarsdóttir, Helga Árnadóttir, Marta María Winkel Jónasdóttir og Helga Thors voru saman á þjóðbúninganámskeiði.

Í fyrra ákvað ég að gefa sjálfri mér tíma fyrir mig þegar ég skráði mig á námskeið Oddnýjar Kristjánsdóttur hjá Heimilisiðnaðarfélagi
Íslands. Ég var búin að gleyma hvað það er gaman að sitja og sauma og geta ekki hugsað um neitt nema saumaskapinn.

Forsaga málsins er sú að á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní, í fyrra skipulögðu vinkonurnar Anna Sigríður Arnardóttir, Birna Bragadóttir og Björk Eiðsdóttir göngu yfir Arnarfell á Þingvöllum í þjóðbúningum. Ég ætlaði nú bara að mæta í göngufötum, því ég átti ekki þjóðbúning, en hópþrýstingur leiddi mig niður í Þjóðdansafélag í Mjóddinni. Þar sem ég stóð úti á miðju gólfi í Mjóddinni, að leigja mér 19. aldar peysuföt fyrir 17. júní, kviknaði nýtt ljós innra með mér. Hvers vegna var ég ekki að sauma á kvöldin í stað þess að skrolla í símanum mínum eða vinna í tölvunni? Hvers vegna var ég hætt að gera það sem ég elskaði að gera þegar ég var lítil stelpa og unglingur? Það er að segja að sauma föt. Það er lítið gagn í því að vera með stúdentspróf í handavinnu ef þekkingin er ekki nýtt í neitt gáfulegt. Það að kunna að sauma öðlaðist þó nýja merkingu á þessu námskeiði því ég kunni í raun afar lítið.

Oddný Kristjánsdóttir klæðskeri og sérfræðingur í þjóðbúningum Íslendinga sneið alla …
Oddný Kristjánsdóttir klæðskeri og sérfræðingur í þjóðbúningum Íslendinga sneið alla búningana og kenndi réttu handtökin í þjóðbúningasaumi. Ljósmynd/Birta Stefánsdóttir

Þegar upp kom sú hugmynd á 17. júní að skrá sig á námskeið í þjóðbúningasaumi var ég staðráðin í að vera með. Það er samt stór ákvörðun því það kostar bæði mikla peninga að sauma þjóðbúning og svo er það tímafrekt. Ég spurði sjálfa mig hvort ég hefði tíma til að sitja og sauma öll kvöld! Björk Eiðsdóttir setti saman hóp af 11 konum úr ólíkum áttum. Sumar þekkti ég ágætlega og aðrar minna. Oddný Kristjánsdóttir, klæðskeri og eigandi Þjóðbúningastofunnar 7ÍHÖGGI, tók að sér að kenna okkur og Elizabeth Katrín Mason klæðskeri var henni innan handar.

Þótt námskeiðið hæfist ekki fyrr en í janúar á þessu ári hófst undirbúningur síðasta haust því þá þurfti hópurinn að ákveða hvaða búning ætti að sauma. Það þurfti að fara í máltöku og velja efni svo allt myndi rúlla smurt fyrir sig þegar námskeiðið hæfist. Ég var strax staðráðin í að sauma 20. aldar peysuföt sem samanstanda af stakk, pilsi og svuntu ásamt húfu. Það var aðallega vegna þess að Birna Bragadóttir klæddist peysufötum af formóður sinni á 17. júní í fyrra og mér fannst þau eitthvað svo klæðileg.

Hér erum við Helga Árnadóttir og Helga Thors sem voru …
Hér erum við Helga Árnadóttir og Helga Thors sem voru með mér á námskeiðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Námskeiðið fór rólega af stað en við byrjuðum á því að sauma pilsið. Aðalmálið var að setja satínborða á faldinn, sauma öðrum megin í saumavél og handsauma kantinn hinum megin. Ég hef aldrei verið sérlega góð í handsaumi og þurfti að nota alla þá þolinmæði sem til var til þess að ná tökum á þessu. Ég ákvað að sleppa tökunum og treysta því að Oddný og Elizabeth myndu leiða okkur áfram og tosa okkur upp úr skurði ef til þess kæmi.

Þegar við byrjuðum á námskeiðinu fengum við þrjár tegundir af tvinna: hvítan grófan þræðingartvinna, svartan þykkan tvinna og einn hefðbundinn.

Næst var komið að því að þræða svuntuna, mæla út rykkinguna og handsauma svo allt mjög nákvæmlega.

Svo kom að stakknum sjálfum, eða peysufatajakkanum. Þar þurfti að þræða tvö stykki saman, efnið sjálft og fóðrið, og það mátti ekki vera kipringur í neinu. Í einum tímanum rétti Oddný mér lengsta stykki sem ég hef séð og sagði mér að ég yrði að kríta á það heima. Sem sagt búa til jafnstóra ferninga og það mætti ekki skeika neinu. Ég var heilt laugardagskvöld með þetta stykki í höndunum og vandaði mig eins og ég gat. Þegar ég kom með það í næsta tíma setti Oddný upp svip og sagði að það þyrfti að gera þetta aftur. Það væri skekkja í þessu. En þetta var bara byrjunin því það átti eftir að þræða allt efnið til að geta búið til rykkingu en þetta stykki er aftan á stakknum og setur mikinn svip á hann.

Anna Kristín Kristjánsdóttir og Anna Sigríður Arnardóttir saumuðu á sig …
Anna Kristín Kristjánsdóttir og Anna Sigríður Arnardóttir saumuðu á sig þessa fallegu búninga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Oddný sagði að það væri best að þræða grófa tvinnann í efnið í góðri birtu. Svo rétti hún mér vax og sagði að ég þyrfti að vaxa þráðinn áður en hann færi í til þess að hann yrði sterkari. Þessi tvinni mætti alls ekki slitna því annars yrði allt ónýtt og þá þyrfti að byrja upp á nýtt.

Svo þurfti að sauma sniðsauma á jakkann, rykkja púffermar og koma þeim í. Það var þó ekki gert fyrr en búið var að ganga frá boðungunum framan á stakknum sem eru marglaga. Eitt flóknasta verkefnið við stakkinn, fyrir utan stykkið að aftan, var að handsauma krækjurnar á, sem halda stakknum saman. Þetta þarf helst að halda út ævina og þess vegna þurfti þetta að vera almennilega gert.

Hildur Hafstein skartgripahönnuður klæðist 19. aldar upphlut sem hún saumaði …
Hildur Hafstein skartgripahönnuður klæðist 19. aldar upphlut sem hún saumaði á námskeiðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allt hafðist þetta eitt af öðru og var hópurinn duglegur að hittast í saumaklúbbum þar sem konur hjálpuðust að.

Það er dýrmætt að gefa sjálfum sér tíma til að gera eitthvað sem ekki hefur verið gert áður. Það er líka dýrmætt að læra að vanda sig því það þýðir ekki að klambra þjóðbúningi saman með einhverjum brussugangi. Skítareddingar eru ekki leyfðar.

Þetta námskeið er strax farið að hafa áhrif á fataskápinn því nú þegar er ég búin að falda buxur, víkka ermar á jakka og þrengja skyrtu. Það er eitthvað svo mikil fegurð í því að draga fram sterku lesgleraugun og saumalampann og gefa sjálfum sér tíma til að gera eitthvað skemmtilegt. Þegar búningarnir voru tilbúnir þurfti að fagna en það var gert með því að klæða sig í búninginn í heimahúsi, labba í gegnum miðbæ Reykjavíkur í honum og fara í heimsókn niður á Alþingi þar sem vel var tekið á móti hópnum.

Björk Eiðsdóttir saumaði 20. aldar upphlut á námskeiðinu.
Björk Eiðsdóttir saumaði 20. aldar upphlut á námskeiðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda