„Við erum afar stolt af þessari nýju viðbót í BL+ línuna“

Hólmfríður Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Blue Lagoon Skincare er til hægri á …
Hólmfríður Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Blue Lagoon Skincare er til hægri á myndinni. Samsett mynd

Blue Lagoon Skincare hefur sett nýtt andlitskrem í BL+ húðvörulínu sinni á markað. BL+ The Cream Light er létt andlitskrem sem veitir húðinni langvarandi raka og dregur úr sýnileika fínna lína ásamt því að gefa húðinni frísklegt og ljómandi yfirbragð. Kremið er sjötta varan í BL+ húðvörulínunni.

„Við erum afar stolt af þessari nýju viðbót í BL+ línuna, sem er létt en öflug viðbót við húðrútínuna sem hentar vel þegar hlýnar í veðri. Viðtökurnar á vörulínunni hafa verið gríðarlega góðar og BL+ hefur unnið til margvíslegra verðlauna, meðal annars hlotið hin eftirsóttu Allure Best of Beauty verðlaun,” segir Hólmfríður Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Blue Lagoon Skincare í fréttatilkynningu. 

Kremið var þróað á rannsóknar- og þróunarsetri Bláa Lónsins. Innihaldsefnið BL+ COMPLEX er afrakstur 30 ára rannsóknarvinnu og nýtir einka­leyfi á líf­virkum örþör­ung­um og kís­il Bláa lóns­ins ásamt því að bygg­ja á brautryðjandi tækni í sjálf­bærri fram­leiðslu.

„Við hönn­un á BL+ COMP­L­EX er notuð nátt­úru­leg fos­fólípíðferja til þess að koma ein­stakri blöndu af örþör­ung­um og kís­il djúpt niður í húðlög­in til að há­marka virkni. BL+ COMP­L­EX styrk­ir nátt­úru­leg­ar varn­ir húðar­inn­ar og vinn­ur gegn ótíma­bærri öldrun henn­ar með því að örva ný­mynd­un kolla­gens og vinna gegn niður­broti þess,“ seg­ir Ása Brynjólfsdóttir, rannsóknar- og þróunarstjóri Bláa Lónsins.

BL+ The Cream Light hentar vel fyrir venjulega, blandaða eða olíukennda húð. Það getur líka hentað vel þeim húðgerðum sem eiga það til að fá bólur eða húð kvenna sem eru að ganga í gegnum hormónabreytingar breytingaskeiðsins.

„Sjálf er ég mikið fyrir léttar áferðir en vil á sama tíma formúlur sem eru virkar og vinna á fínum línum, ég get því með sanni sagt að mín húðrútína hafi verið fullkomnuð með þessari nýju viðbót,” segir Hólmfríður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda