„Gaman að fá að vera fín á þessum dögum“

Sanna Magdalena Mörtudóttir klæddist 20. aldar upphlut á 17. júní. …
Sanna Magdalena Mörtudóttir klæddist 20. aldar upphlut á 17. júní. Líf Magneudóttir borgarfulltrúi VG klæddist líka þjóðbúningi. Hún var í 20. aldar peysufötum. mbl.is/Hákon Pálsson

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins klæddist íslenska þjóðbúningnum tvo daga í þessari viku. Fyrst þann 17. júní og svo þann 19. júní. Um er að ræða 20. upphlut, pils, blússu og svuntu. 

„Ég var í upphlut 20. aldar. Ég hef aldrei verið í þjóðbúningi áður og fékk lánaðan frá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur og fékk mikla hjálp þar. Ásta sem hjálpaði mér þar, er alveg yndisleg. Ég fékk búning lánaðan fyrir 17. júní og kvenréttindadaginn 19. júní,“ segir Sanna Magdalena í samtali við Smartland. Hún fékk tvær svuntur lánaðar sem hún notaði við sitthvort tilefnið. Með því að breyta um svuntu gjörbreytist búningurinn. 

Hvernig upplifun var það að klæðast íslenska þjóðbúningnum? 

„Mjög vel, gaman að fá að vera fín á þessum dögum,“ segir hún. 

Var þig búið að langa það lengi að skarta íslenskum þjóðbúningi? 

„Ég var búin að vera leiða hugann að því að það gæti verið gaman að prófa að vera í þjóðbúningi og fékk ábendingu um að Þjóðdansfélag Reykjavíkur væri að leigja út og ákvað að slá til.“

Sanna Magdalena klæddist búningnum 19. júní þegar hún lagði krans …
Sanna Magdalena klæddist búningnum 19. júní þegar hún lagði krans á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. mbl.is/Árni Sæberg
Á 17. júní var Sanna Magdalena með bláköflótta svuntu við …
Á 17. júní var Sanna Magdalena með bláköflótta svuntu við búninginn. mbl.is/Hákon Pálsson
Rauða svuntan á búningnum er klæðileg.
Rauða svuntan á búningnum er klæðileg. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórnmálakonur á búningi

Hún var ekki sú eina sem skartaði þjóðbúningi á 17. júní því Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík klæddist 20. aldar peysufötum sem hún fékk í gjöf frá eiginmanni sínum. Fötin voru keypt hjá Oddnýju Kristjánsdóttur sem rekur fyrirtækið 7íhöggi en hún er einn helsti þjóðbúningasérfræðingur landsins. 

Heiða Björg Hilmisdóttir var í 20. aldar peysufötum á 17. …
Heiða Björg Hilmisdóttir var í 20. aldar peysufötum á 17. júní. mbl.is/Hákon Pálsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda