Marteinn nýr framkvæmdastjóri Húrra

Marteinn Högni tekur við sem framkvæmdastjóri Húrra.
Marteinn Högni tekur við sem framkvæmdastjóri Húrra. Skjáskot/Instagram

Tísku- og lífsstílsverslunin Húrra Reykjavík hefur ráðið Martein Högna Elíasson sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Marteinn starfaði áður hjá Íslandsbanka.

Marteinn mun stýra daglegum rekstri Húrra og leiða áfram uppbyggingu vörumerkisins sem hefur staðið yfir undanfarin ár, segir í tilkynningu Húrra á samfélagsmiðlinum Instagram.

Gleðitíðindi frá Hverfisgötu! Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að nýr framkvæmdastjóri hefur hafið störf hjá Húrra. Mörg ykkar þekkið hann eflaust, en það er enginn annar en Marteinn Högni Elíasson sem tekur við taumunum hjá Húrra í dag,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

 Húrra var stofnað árið 2014 af Jóni Davíð Davíðssyni og Sindra Snæ Jenssyni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda