Lily Allen hefnir sín í efnislitlum fötum

Það var lítið eftir fyrir ímyndunaraflið í klæðaburði Lily Allen …
Það var lítið eftir fyrir ímyndunaraflið í klæðaburði Lily Allen á amerísku tískuverðlaununum sem er einn stærsti tískuviðburður í Bandaríkjunum. AFP

Söngkonan Lily Allen hefur verið mikið í fréttum síðan hún gaf út plötuna West End Girl. Á plötunni fjallar Allen um samband þeirra David Harbour með beinskeyttum textum sem vísa til framhjáhalds hans. 

Athyglin er enn öll á Allen og sérstaklega eftir gærkvöldið þegar hún mætti í eitt stærsta tískupartí heims, CFDA-verðlaunin í New York. Hún þótti hafa mætt í hinum fullkomna „hefndarkjól“.

Föt Allen eru frá ameríska fatahönnuðinum Colleen Allen. Hún klæddist kremuðum, efnislitlum blúndutopp, sýndi allan kviðinn og paraði hann við sítt satínsilkipils. Til að fullkomna útlitið í gamaldags Hollywood-stíl bætti hún við dramatískri slæðu. 

Stuttur toppur og pils í stíl úr kremaðri blúndu og …
Stuttur toppur og pils í stíl úr kremaðri blúndu og satínefni. AFP

Hvað er hefndarkjóll?

Hugtakið hefndarkjóll, eða „revenge dress“, vísar til fatnaðar sem einhver klæðist eftir sambandsslit eða stundum opinbera niðurlægingu til að sýna fram á sjálfstæði, sjálfsöryggi og að viðkomandi hafi náð sér upp aftur. 

Það er ákveðin táknræn yfirlýsing um að manneskjan sé ekki brotin eða miður sín heldur sterkari, fallegri og tilbúin að halda áfram. 

Hugtakið varð frægt árið 1994 þegar Díana prinsessa mætti í svörtum, glæsilegum og frekar djörfum kjól á góðgerðarkvöldverð sama kvöld og Karl Bretaprins játaði framhjáhald sitt í sjónvarpi. Kjóllinn, sem var hannaður af Christinu Stambolian, varð fljótt tákn um sjálfstæði Díönu. 

Nú orðið er þetta notað í víðari merkingu um hvaða föt sem er. Þetta er talin leið margra til að sýna að þeir hafi yfirunnið sársauka, hafnað fórnarlambshlutverki og endurheimt sjálfstraust sitt. Það þarf ekki endilega að vera kjóll og getur verið annar fatnaður sem sendir þessi skilaboð. Síðustu ár hafa þetta þó verið ögrandi flíkur.

Díana prinsessa var mikil tískufyrirmynd á sínum tíma, en hér …
Díana prinsessa var mikil tískufyrirmynd á sínum tíma, en hér er hún í kjól frá Christinu Stambolian, sem er talinn sem hennar hefndarkjóll. mbl

CFDA-verðlaunin eru árleg tískuverðlaun sem eru veitt til fata- og fylgihlutahönnuða og annarra sem þykja setja svip á tískuheiminn. Ralph Lauren hlaut verðlaun sem ameríski kvenfatahönnuður ársins og Thom Browne hlaut verðlaun fyrir hönnun á karlafatnaði. 

Systurnar Mary-Kate og Ashley Olsen hlutu verðlaun sem fylgihlutahönnuðir ársins en þær eru stofnendur og hönnuðir tískuhússins The Row. 

Ashlyn Park var valin besti nýliðinn í tískuheiminum en hún er stofnandi fatamerkisins Ashlyn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

tannlæknir svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda