Fylkir lagði Val að velli

Harður slagur í vítateig Valsmanna í leiknum í kvöld.
Harður slagur í vítateig Valsmanna í leiknum í kvöld. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Þórir Hannesson og Albert Brynjar Ingason skoruðu mörk Fylkis sem lagði Val að velli, 2:1, í Pepsideild karla í knattspyrnu í kvöld. Jónas Tór Næs náði að klóra í bakkann fyrir Val undir lokin. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Fylkismenn eru því komnir með 7 stig en Valsmenn eru í 5. sætinu  með 6 stig.

Lið Fylkis: Fjalar Þorgeirsson - Þórir Hannesson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason, Tómas Þorsteinsson, Ingimundur Níels Óskarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Gylfi Einarsson, Jóhann Þórhallsson, Andrés Már Jóhannesson, Albert Brynjar Ingason.

Varamenn: Ísak Björgvin Gylfason, Daníel Freyr Guðmundsson, Trausti Björn Ríkharðsson, Andri Már Hermannsson, Andri Þór Jónsson, Hjörtur Hermannsson.

Lið Vals: Haraldur Björnsson -  Jónas Tór Næs, Halldór Kristinn Halldórsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Pól Jóhannus Justinusson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Christian Mouritsen, Guðjón Pétur Lýðsson, Jón Vilhelm Ákason, Hörður Sveinsson, Matthías Guðmundsson.

Varamenn: Sindri Snær Jensson, Stefán Jóhann Eggertsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Þórir Guðjónsson, Fitim Morina, Haukur Páll Sigurðsson, Andri Fannar Stefánsson.

Fylkir 2:1 Valur opna loka
90. mín. Jónas Tór Næs (Valur) skorar 2:1 Guðjón Pétur tók aukaspyrnu af vinstri kantinum og Jónas stökk hæst allra, og náði að skalla boltann efst í hægra markhornið. Enn er von fyrir Val!
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert