Breiðablik upp í 6. sætið

Blikarnir Kristinn Jónsson og Andri Rafn Yeoman og Grindvíkingurinn Óli …
Blikarnir Kristinn Jónsson og Andri Rafn Yeoman og Grindvíkingurinn Óli Baldur Bjarnason. mbl.is/Ómar

Breiðablik sigraði Grindavík, 4:2, í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, Pepsi-deildinni, á Grindavíkurvelli í kvöld og komst með sigrinum upp í 6. sæti deildarinnar en Grindavík er sem fyrr í botnsætinu.

Blikar eru komnir með 26 stig og geta enn blandað sér í  baráttuna um Evrópusæti en Grindvíkingar eru aðeins með 10 stig og eiga orðið sáralitla möguleika á að forða sér  frá falli.

Breiðablik komst í 4:0 á fyrstu 34 mínútunum. Arnar Már Björgvinsson, Kristinn Jónsson, Tómas Óli Garðarson og Rafn Andri Haraldsson skoruðu fyrir Blikana en Óli Baldur Bjarnason og Hafþór Ægir Vilhjálmsson svöruðu fyrir Grindavík í seinni hálfleik. 

Lið Grindavíkur: Óskar Pétursson - Loic Ondo, Ólafur Örn Bjarnason, Marko V. Stefánsson, Ray Anthony Jónsson, Matthías Örn Friðriksson, Iain Williamson, Óli Baldur Bjarnason, Scott Ramsay, Pape Mamadou Faye, Tomi Ameobi.
Varamenn: Hákon Ívar Ólafsson, Alex Freyr Hilmarsson, Ægir Þorsteinsson (m), Björn Berg Bryde, Magnús Björgvinsson, Daníel Leó Grétarsson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson.

Lið Breiðabliks: Ingvar Þór Kale - Gísli Páll Helgason, Renee Troost, Sverrir Ingi Ingason, Kristinn Jónsson - Finnur Orri Margeirsson, Andri Rafn Yeoman, Rafn Andri Haraldsson - Tómas Óli Garðarsson, Nichlas Rohde, Arnar Már Björgvinsson.
Varamenn: Sindri Snær Magnússon, Elfar Árni Aðalsteinsson, Ben J. Everson, Haukur Baldvinsson, Olgeir Sigurgeirsson, Adam Örn Arnarson, Sigmar Ingi Sigurðarson (m).

Grindavík 2:4 Breiðablik opna loka
90. mín. Hafþór Ægir Vilhjálmsson (Grindavík) skorar 2:4 Gott skallamark hjá Hafþóri eftir fína fyrirgjöf Magnúsar frá hægri þegar rúm mínúta er komin fram yfir venjulegan leiktíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert