Elías með tvö og Keflavík á toppnum

Elías Már Ómarsson skoraði bæði mörk Keflavíkur og brunar hjér …
Elías Már Ómarsson skoraði bæði mörk Keflavíkur og brunar hjér framhjá Stefáni Gíslasyni sem liggur á vellinum. Ljósmynd/Víkurfréttir

Keflvíkingar fengu Blika í heimsókn í kvöld í þriðju umferð Pepsi-deildarinnar og svo fór að Keflvíkingar sigruðu verðskuldað 2:0.

Leikurinn var frekar daufur framan af en á 62. mínútu datt boltinn fyrir Elías Má Ómarsson sem skoraði fyrsta mark leiksins.  Það var svo á 82. mínútu að Elías skoraði sitt annað mark og innsiglaði sigur heimamanna.  

Blikarnir voru ekki sjón að sjá og hafa þeir oft spilað betur. Þeir virtust aldrei í þeim sporunum að fara að gera neitt í þessum leik og uppskáru eftir því.

Keflvíkingar hinsvegar spiluðu vel í kvöld og standa á toppi deildarinnar með 9 stig eftir þrjá sigra.

Viðtöl koma á mbl.is síðar í kvöld og umfjöllun í Morgunblaðinu í fyrramálið.

Hægt er að fylgjast með öllum leikjunum og fá fullt af fréttum sem tengjast þeim hér: PEPSI-DEILDIN Í BEINNI.

Keflavík 2:0 Breiðablik opna loka
90. mín. Elías Már Ómarsson (Keflavík) fær gult spjald +2 Brot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert