Fögnuður Íslandsmeistara Vals (myndskeið)

Valur tryggði sér í gærkvöldi Íslandsmeistaratitil karla í knattspyrnu eftir 4:1-sigur á Fjölni í 20. umferð Pepsi-deildar karla. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Vals í tíu ár og fögnuðurinn var eftir því.

Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins, var á staðnum og fangaði augnablikið þegar Valsmenn fögnuðu titlinum og má það sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

Valsmenn fögnuðu titlinum innilega.
Valsmenn fögnuðu titlinum innilega. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert