Willum Þór Þórsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til Alþingis fyrir Framsóknarflokkinn og hann mun þar með láta af störfum sem þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu eftir tímabilið.
Willum staðfestir þetta í samtali við netmiðilinn 433.is en Willum mun bjóða sig fram í 1. sæti í Suðvesturkjördæmi fyrir Framsóknarflokkinn.
Willum tók við þjálfun KR-liðsins af Bjarna Guðjónssyni um mitt tímabilið í fyrra og undir hans stjórn endaði liðið í 3. sæti og vann sér sæti í Evrópukeppninni. Fyrir lokaumferðina í Pepsi-deildinni sem fer á laugardaginn er KR í fjórða sæti en eftir úrslitin í næst síðustu umferð deildarinnar varð ljóst að liðið missti af Evrópusæti.
KR-ingar eru þar með byrjaðir að leita eftirmanns Willums. Rúnar Kristinsson, sem þjálfaði vesturbæjarliðið með frábærum árangri frá 2010-14, hefur verið nefndur til sögunnar sem og Arnar Grétarsson. Rúnar var fyrir nokkru síðan rekinn úr starfi þjálfara Lokeren í Belgíu og Arnar var látinn poka sinn sem þjálfari Breiðabliks eftir aðeins tvo leiki í deildinni í sumar.