Miðasala fyrir HM í Rússlandi

Leikmenn íslenska landsliðsins fagna eftir sigur gegn Kosóvó í fyrrakvöld.
Leikmenn íslenska landsliðsins fagna eftir sigur gegn Kosóvó í fyrrakvöld. mbl.is/Golli

Margir hafa sett sig í samband við Knattspyrnusamband Íslands og spurst fyrir um miða á heimsmeistaramótið í knattspyrnu þar sem þeir vilja fylgjast með íslenska landsliðinu í Rússlandi næsta sumar.

Á vef KSÍ er komin eftirfarandi tilkynning;

Mikið hefur verið spurt um miða á HM í Rússlandi undanfarna daga. Starfsmenn KSÍ áttu fund með miðasöludeild FIFA í morgun og er nú unnið úr þeim upplýsingum sem fengust á þeim fundi. 

Aðalhluti miðasölu til stuðningsmanna Íslands mun fara fram á miðasöluvef FIFA og hefst sú miðasala 5. desember og mun standa til 31. janúar. 

Nánari upplýsingar um fjölda miða, miðaverð og kaupferlið eru í vinnslu og verða birtar í heild á næstu vikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert