Aron Jóhannsson í Grindavík

Jónas Karl Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar, Aron Jóhannsson og Óli Stefán …
Jónas Karl Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar, Aron Jóhannsson og Óli Stefán Flóventsson þjálfari. Ljósmynd/Grindavík

Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Grindavík. Hann kemur til félagsins frá Haukum þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. 

Aron hefur aðeins misst af þremur deildarleikjum með Haukum á síðustu fjórum árum og lék hann 21 leik í 1. deildinni síðasta sumar. Hann á að baki 134 leiki með Haukum og í þeim hefur hann skorað 20 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert