Fjölnir vann Íslandsmeistarana

Þórir Guðjónsson skoraði gegn Val í kvöld.
Þórir Guðjónsson skoraði gegn Val í kvöld. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Reykjavíkurmót karla í knattspyrnu hófst í dag með tveimur leikjum. Annars vegar vann Fjölnir 4:2-sigur á Val og hins vegar skildu Fylkir og Fram jöfn, 0:0.

Arnar Sveinn Geirsson kom Valsmönnum yfir á 25. mínútu gegn Fjölni en Hans Viktor Guðmundsson og Birnir Snær Ingason komu Fjölni yfir skömmu fyrir leikhlé. Guðjón Pétur Lýðsson jafnaði hins vegar metin í blálok fyrri hálfleiks.

Þórir Guðjónsson og Jóhann Árni Gunnarsson sáu hins vegar til þess að Fjölnir nældi í þrjú stig með tveimur mörkum á síðasta korteri leiksins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert