Veigar og Jón Þór í þjálfarateymi Stjörnunnar

Veigar Páll Gunnarsson í leik með Stjörnunni.
Veigar Páll Gunnarsson í leik með Stjörnunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Veigar Páll Gunnarsson og Jón Þór Hauksson hafa verið ráðnir aðstoðarþjálfarar meistaraflokks karla hjá Stjörnunni og verða þeir Rúnari Páli Sigmundssyni innan handar hjá Garðabæjarliðinu.

Davíð Snorri Jónasson hefur látið af störfum sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar sem og Brynjar Björn Gunnarsson, sem er tekinn við þjálfun karlaliðs HK.

Samningar þeirra Veigars og Jón Þórs eru til tveggja ára. Veigar Páll er öllum hnútum kunnugur hjá Stjörnunni og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2013 en á síðustu leiktíð lék hann með FH og Víkingi Reykjavík.

Jón Þór hefur verið aðstoðarþjálfari hjá ÍA undanfarin ár og tók svo alfarið við þjálfun liðsins eftir að Gunnlaugur Jónsson lét af störfum í ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert