Starfshópur um uppbyggingu Laugardalsvallar

Laugardalsvöllur.
Laugardalsvöllur. mbl.is/Árni Sæberg

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Guðni Bergsson, formaður KSÍ, undirrituðu í dag yfirlýsingu um skipun starfshóps um uppbyggingu Laugardalsvallar.

KSÍ hefur haft til skoðunar um nokkurt skeið mögulega uppbyggingu Laugardalsvallar sem þjóðarleikvangs fyrir knattspyrnu. Í kjölfar góðs árangurs karla- og kvennalandsliða í knattspyrnu hefur farið fram umræða um stöðu Laugardalsvallar í alþjóðlegu samhengi en völlurinn og mannvirki umhverfis hann standast ekki alþjóðlegar kröfur. 

Knattspyrnusambandið hefur skoðað möguleika til úrbóta en hagkvæmniathugun liggur fyrir þar sem sviðsmyndir vegna mögulegrar uppbyggingar eru kynntar. Ríki og borg hafa stutt verkefnið með fjárframlögum.

Forsætisráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík hafa ákveðið að skipa starfshóp í samstarfi við KSÍ sem fara skal yfir fyrirliggjandi tillögur, leggja mat á þær og gera tillögur um mögulega uppbyggingu.

Starfshópnum verður falið að gera tillögu um eftirfarandi atriði:

•        Hvers konar leikvangur væri hagstæðastur í Laugardal af þeim kostum sem skoðaðir hafa verið.
•        Fjármögnun og kostnaðarskiptingu út frá þeirri hugmynd sem verður fyrir valinu.
•        Eignarhald mannvirkisins.
•        Mögulega aðkomu ríkisins að verkefninu, m.a. í ljósi hugmynda um regluverk um
        þjóðarleikvanga.
•        Mögulega aðkomu Reykjavíkurborgar að verkefninu.
•        Mögulega aðkomu KSÍ að verkefninu.
•        Tilhögun framkvæmda og tímaáætlun.

Starfshópinn skipa:

Benedikt Árnason skrifstofustjóri, forsætisráðuneyti, formaður.
Anna Sigríður Arnardóttir lögfræðingur, f.h. fjármála- og efnahagsráðuneytis.
Óskar Þór Ármannsson sérfræðingur, mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Hrólfur Jónsson, skrifstofustjóri eigna- og atvinnuþróunar, Reykjavíkurborg.
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Reykjavíkurborg.
Ómar Einarsson, sviðsstjóri íþrótta- og tómstundasviðs, Reykjavíkurborg.
Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands.
Guðrún Inga Sívertsen, varaformaður Knattspyrnusambands Íslands.
Borghildur Sigurðardóttir, stjórnarmaður Knattspyrnusambands Íslands.
Ráðgjafi starfshópsins er Pétur Marteinsson, framkvæmdastjóri Borgarbrags.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert