Samið við Íra um landsleik

Byrjunarlið 21-árs landsliðsins fyrir fyrsta leikinn í haust.
Byrjunarlið 21-árs landsliðsins fyrir fyrsta leikinn í haust. mbl.is/Golli

Ísland mætir Írlandi í vináttulandsleik 21-árs landsliða karla í knattspyrnu á Tallaght Stadium í Dublin, heimavelli Shamrock Rovers, fimmtudaginn 22. mars.

Leikurinn verður liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir leik gegn Norður-Írum á útivelli sem fram fer fjórum dögum síðar, 26. mars.

Íslenska liðið, undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar, er hálfnað í undankeppni fyrir EM 2019 og er í þriðja sæti síns riðils, á eftir Spánverjum og Norður-Írum, með sjö stig eftir fimm leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert