Helgi Valur til Fylkis

Helgi Valur Daníelsson.
Helgi Valur Daníelsson. Ljósmynd/Eva Björk Ægisdóttir

Helgi Valur Daníelsson er genginn í raðir Fylkis en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Árbæjarliðinu. Helgi er uppalinn hjá Fylki en lék lengi sem atvinnumaður, síðast með liði AGF í Danmörku en hann hefur ekkert spilað frá árinu 2015. Fylkir tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni síðastliðið haust.

Í fréttatilkynningu frá Fylki segir;

Helgi Valur Daníelsson skrifaði í dag undir samning við Fylki. Þetta eru frábærar fréttir fyrir Fylki en Helgi hefur verið lengi í atvinnumennsku og ætlar nú að koma aftur til Fylkis. 
Helgi sem er uppalinn Fylkismaður hefur átt farsælan feril sem leikmaður.

Hann spilaði 68 leiki í meistaraflokki Fylkis áður en hann fór í atvinnumennsku en þar spilaði hann yfir 300 leiki með liðum eins og Peterborough í Englandi, Öster, Elfsborg og AIK í Svíþjóð, Hansa Rostock í Þýskalandi, Beleneses í Portúgal og AGF í Danmörku en þar kláraðist samningur hans 2015. Helgi hefur spilað 38 leiki með yngri landsliðum og 33 leiki með A-landsliði Íslands.

Helgi sem er fæddur árið 1981 spilaði síðast með AGF í atvinnumennsku en hefur búið í Portúgal síðustu ár. Nú er hann á heimleið til að spila með uppeldisfélaginu sínu.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir Fylki. Helgi er frábær fótboltamaður, uppalinn hjá félaginu og hefur átt farsælan feril sem leikmaður. Það er gott að fá Helga til okkar aftur til að taka þátt í spennandi tímum sem eru fram undan hjá Fylki,“ segir Þorvaldur Árnason, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Fylki.

„Það er algjörlega frábært að það hafi komið upp sú staða að ég gæti fengið tækifæri til að koma heim í uppeldisklúbbinn minn. Mér finnst ég vera tilbúinn í að koma heim og taka slaginn í Pepsi-deildinni. Ég hef haldið mér ágætlega við eftir að ég hætti að spila sem atvinnumaður og stefni á að vera kominn í toppform sem allra fyrst,“ segir Helgi Valur Daníelsson, leikmaður Fylkis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert