Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við argentínska varnarmanninn Ignacio Fideleff. Fideleff er 28 ára og hefur hann leikið með stórum félögum eins og Parma, Maccabi Tel Aviv og Napoli á ferlinum.
Fideleff lék á sínum tíma níu leiki fyrir U20 ára landslið Argentínu og þótti mikið efni. Hann á að baki fjóra leiki í Seríu A, efstu deild Ítalíu. Hann lék síðast með Club Nacional í Paragvæ.
„Um er að ræða áræðinn, örvfættan og baráttuglaðan varnarmann, sem hefur karakter og metnað til að setja ÍBV í fremstu röð á ný á fimmtugasta tímabili félagsins í efstu deild,“ segir í yfirlýsingu á heimasíðu ÍBV.