Agla María með tvö í sigri Breiðabliks

Agla María Albertsdóttir, sem skoraði tvö marka Blika í dag, …
Agla María Albertsdóttir, sem skoraði tvö marka Blika í dag, í baráttu við Jasmín Erlu Ingadóttur í leiknum í Fífunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breiðablik vann 3:1-sigur á FH í Fífunni í A-deild Lengjubikars kvenna í dag. Alexandra Jóhannsdóttir skoraði fyrsta mark Blika áður en Agla María Albertsdóttir bætti tveimur við og fara þær því báðar vel af stað fyrir sitt nýja félag.

Diljá Ýr Zomers klóraði í bakkann fyrir FH-inga eftir rúmlega klukkutímaleik en það dugði ekki til og hafa Hafnfirðingar nú tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni. Þetta var fyrsti leikur Breiðabliks í keppninni og fer liðið upp að hlið Val á toppnum.

Breiðablik endaði í 2. sæti Pepsi-deildar kvenna í fyrra og hefur nú meðal annars bætt við sig hinni öflugu Öglu Maríu. FH endaði síðasta sumar í sjötta sæti.

Markaskorarar fengnir af Urslit.net

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert