Valskonur unnu góðan útisigur á Íslandsmeisturum Þórs/KA í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu í dag en leikið var í Boganum á Akureyri. Lokatölur urðu 1:0 en sigurmarkið skoraði Ásdís Karen Halldórsdóttir.
Valskonur fara í sex stig með sigrinum en þær unnu FH í fyrstu umferðinni. Þór/KA er stigalaust en fresta þurfi leik liðsins gegn Stjörnunni í 1. umferðinni.