Jonathan Glenn snýr aftur og nú til Fylkis

Jonathan Glenn fagnar marki með Blikum.
Jonathan Glenn fagnar marki með Blikum. mbl.is/Golli

Knattspyrnudeild Fylkis tilkynnti nú í kvöld að sóknarmaðurinn Jonathan Glenn hefði samið við félagið til næstu tveggja ára.

Glenn er þrítugur að aldri og þekkir vel til hér á landi. Hann kom fyrst til ÍBV og skoraði 16 mörk í Pepsi-deildinni 2014 og fyrri hluta 2015, áður en hann færði sig til Breiðabliks. Alls skoraði hann 24 mörk í 55 leikjum í deildinni á þremur árum, en á síðasta ári spilaði hann í Bandaríkjunum, fyrst með Jacksonville Armada í D-deild en síðan með North Carolina í B-deildinni.

Glenn á þar að auki að baki sex landsleiki fyrir Trínidad og Tóbagó, en hann er væntanlegur til landsins á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert