Víkingur hafði betur gegn Njarðvík, 3:2, er liðin mættust í Lengjubikar karla í fótbolta í Reykjaneshöllinni í kvöld. Halldór Jón Sigurður Þórðarson skoraði sigurmark Víkinga í blálokin.
Víkingur komst yfir á 13. mínútu með sjálfsmarki og tveimur mínútum siðar skoraði Erlingur Agnarsson og kom Víkingi í 2:0, sem var staðan í hálfleik. Njarðvíkingar neituðu að gefast upp og Atli Freyr Pálsson minnkaði muninn á 65. mínútu og tíu mínútum síðar jafnaði Neil Slooves. Eins og áður segir skoraði Halldór hins vegar sigurmarkið í lokin.
Bæði lið eru nú með þrjú stig í riðli 1, en Víkingur hefur leikið tvo leiki og Njarðvík þrjá.