Breiðablik kjöldró Grindavík

Agla María Albertsdóttir skoraði eitt marka Breiðabliks í sigri liðsins …
Agla María Albertsdóttir skoraði eitt marka Breiðabliks í sigri liðsins gegn Grindavík í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breiðablik vann sannfærandi 6:0-sigur þegar liðið mætti Grindavík í A-riðli Faxaflóamóti kvenna í knattspyrnu í Fífunni í Kópavogi í dag.

Berglind Baldursdóttir skoraði tvö marka Breiðabliks í leiknum og Selma Sól Magnúsdóttir, Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, Agla María Albertsdóttir og Tinna Harðardóttir sitt markið hver. 

Breiðablik er á toppi A-riðilsins með 13 stig eftir þennan sigur, en Grindavík er aftur á móti á hinum endanum á botni riðilsins án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert