Birna til Stjörnunnar

Gemma Fay frá Skotlandi, til vinstri, varði mark Stjörnunnar í …
Gemma Fay frá Skotlandi, til vinstri, varði mark Stjörnunnar í fyrra. Nú er Birna Kristjánsdóttir komin í Garðabæjarfélagið. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumarkvörðurinn Birna Kristjánsdóttir, sem hefur leikið í Noregi undanfarin ár, er gengin til liðs við Stjörnuna.

Birna, sem er 31 árs, hefur leikið með Grand Bodö undanfarin þrjú ár. Tvö fyrri árin í 1. deild þar sem hún var aðalmarkvörður, en hún var síðan varamarkvörður liðsins í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og missti þá talvert úr vegna meiðsla.

Áður lék Birna með Val, ÍR, Breiðabliki, Völsungi og HK/Víkingi en hún á að baki einn A-landsleik fyrir Íslands hönd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert