Arna tryggði meisturunum fyrsta sigurinn

Arna Sif Ásgrímsdóttir
Arna Sif Ásgrímsdóttir mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Íslandsmeistarar Þór/KA unnu sinn fyrsta leik í Lengjubikar kvenna í fótbolta í kvöld. Þór/KA vann þá ÍBV, 2:1, á gervigrasinu á Leiknisvelli.

ÍBV komst yfir með marki á 11. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins. Lára Einarsdóttir jafnaði á 59. mínútu og Arna Sif Ásgrímsdóttir skoraði sigurmarkið á 71. mínútu. 

Arna gekk á dögunum í raðir uppeldisfélagsins, Þór/KA, eftir ótrúlega dvöl hjá Verona á Ítalíu, en hún lék með Val í tvö tímabil, þar á undan. 

Þór/KA er í 3. sæti riðilsins með fjögur stig eftir fjóra leiki, en ÍBV er með þrjú stig eftir þrjá leiki. Valskonur eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki á toppnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert