Fram fær annan Brasilíumann

Brasilíumennirnir tveir og Pedro Hipólító, þjálfari Fram.
Brasilíumennirnir tveir og Pedro Hipólító, þjálfari Fram. Ljósmynd/Fram

Knattspyrnudeild Fram hefur gert tveggja ára samning við 23 ára gamlan varnarmann frá Brasilíu, Marcus Vieira. Er hann kallaður Marcáo og hefur spilað með EC Bahia og Juventude í heimalandinu og Zaria Balti í Moldóvu.

Marcáo lék á sínum tíma fjóra leiki með yngri landsliðum Brasilíu. Hann er annar Brasilíumaðurinn sem Fram fær til sín fyrir sumarið. Á heimasíðu Fram kemur fram að Marcáo sé sterkur í loftinu og með mikla sendingargetu. Hann er stór og stæðilegur, 193 cm og 90 kg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert