Stjörnum prýtt lið Ármanns gegn Fram

Bjarki Bergmann Gunnlaugsson er meðal leikmanna Ármanns.
Bjarki Bergmann Gunnlaugsson er meðal leikmanna Ármanns. mbl.is/Árni Sæberg

Margir gamalkunnir fótboltamenn hafa gengið til liðs við Ármann í Reykjavík og ætla að spila með liðinu gegn Fram á morgun í 1. umferð bikarkeppni KSÍ, sem nú heitir Mjólkurbikarinn.

Meðal þeirra sem gengið hafa til liðs við Ármann síðustu daga eru Bjarki Gunnlaugsson, Haukur Ingi Guðnason, Brynjar Björn Gunnarsson, Gunnlaugur Jónsson, Björgólfur Takefusa, Bjarnólfur Lárusson, Kristinn Magnússon, Tommy Nielsen, Sæbjörn Guðmundsson, Þormóður Egilsson, Sigurbjörn Hreiðarsson og gamli landsliðsmarkvörðurinn Þorsteinn Bjarnason.

Þessir kappar eru samanlagt með þúsundir leikja á bakinu og margir þeirra þrautreyndir landsliðsmenn.

Leikur Fram og Ármanns fer fram á gervigrasvelli Framara á morgun klukkan 14.00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert