Framarar semja við Makedóníumann

Pedro Hipolito, þjálfari Fram og Fred t.v
Pedro Hipolito, þjálfari Fram og Fred t.v fram.is

Knattspyrnudeild Fram hefur samið við Mihajlo Jakimoski, 22 ára kantmann frá Makedóníu. Hann kemur til Fram frá Teteks Tetovo, sem leikur í B-deildinni í Makedóníu. 

Jakimoski spilaði 22 deildarleiki fyrir Teteks Tetovo á síðustu leiktíð og skoraði í þeim fjögur mörk. Tímabilið á undan lék hann 19 leiki og skoraði eitt mark. 

Brasilíumaðurinn Fred er svo loks kominn með leikheimild hjá Fram, en hann kom til félagsins í síðasta mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert