Færeyskur landsliðsmaður í FH

Ólafur Helgi Kristjánsson sækir liðsstyrk.
Ólafur Helgi Kristjánsson sækir liðsstyrk. Ljósmynd/Víkurfréttir

Hinn 22 ára gamli Brandur Olsen hefur gengið í raðir FH frá danska félaginu Randers. Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var við stjórnvölinn hjá Randers og þekkir því vel til Brands.

Brandur gekk í raðir FC Kaupmannahafnar 16 ára gamall og lék átta leiki fyrir aðallið félagsins og skoraði tvö mörk.

Árið 2016 var hann lánaður til B-deildarliðsins Vendsyssel FF þar sem hann lék 11 leiki.

Sumarið 2016 skrifaði Brandur undir þriggja ára samning við Randers. Meðan á tveggja ára veru hans hjá félaginu stóð kom hann aðeins níu sinnum við sögu og skoraði eitt mark.

Á sama tíma hefur Brandur leikið 16 leiki fyrir færeyska landsliðið og skorað í þeim þrjú mörk.

FH hefur Íslandsmótið 28. apríl þegar liðið sækir Grindavík heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert