Framarar skoruðu tíu

Framarar skoruðu tíu mörk.
Framarar skoruðu tíu mörk. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fram er komið í 3. umferð Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 10:0-sigur á GG í Safamýrinni í dag. Fram vann Ármann 6:0 í 1. umferð og er því með markatöluna 16:0 eftir fyrstu tvær umferðirnar. 

Reynir Þór Valsson og Haukur Ingi Júlíusson skoruðu báðir tvö mörk fyrir Reyni frá Sandgerði sem vann 9:0-útisigur á Skallagrími og Magni átti ekki í erfiðleikum með að vinna KF á KA-vellinum á Akureyri, 5:0. Pétur Heiðar Kristjánsson, Kristinn Þór Rósbergsson, Baldvin Ólafsson og Kristján Atli Marteinsson skoruðu allir og eitt markanna var sjálfsmark. 

Loks vann Einherji 1:0-sigur á Leikni F. á Fellavelli. Jökull Steinn Ólafsson skoraði sigurmarkið á 76. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert