Sigrún Ella aftur í Stjörnuna

Sigrún Ella Einarsdóttir er á heimleið.
Sigrún Ella Einarsdóttir er á heimleið. Ljósmynd/Ófeigur Lýðsson

Knattspyrnukonan Sigrún Ella Einarsdóttir er á leið í Stjörnuna á nýjan leik en hún hefur leikið með Fiorentina á Ítalíu síðan í ágúst á síðasta ári. Þetta herma áreiðanlegar heimildir mbl.is. 

Sigrún hefur þurft að verma varamannabekk Fiorentina að undanförnu og er nú á heimleið. Sigrún hóf ferilinn hjá FH og lék hún með Hafnarfjarðarliðinu þangað til ársins 2014 þegar hún skipti yfir til Stjörnunnar. 

Sigrún á tvo A-landsleiki að baki og níu leiki með yngri landsliðum. Ekki er ljóst hvenær Sigrún Ella mætir til leiks með Stjörnunni, en það fer eftir hversu langt Fiorentina fer í ítalska bikarnum. Hún gæti verið gjaldgeng með Garðabæjarliðinu 15. maí en annars ekki fyrr en 15. júlí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert