Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mun mæta Frakklandi í vináttuleik í Frakklandi þann 11. október næstkomandi. Ekki er búið að ákveða leikstað þar í landi.
Leikurinn verður liður í undirbúningi Íslands fyrir viðureign gegn Sviss í Þjóðadeildinni sem fram fer þann 15. október á Laugardalsvelli. Þetta verður í 13. skiptið sem þjóðirnar mætast, en Frakkar hafa unnið 9 leiki og 3 sinnum hafa liðin gert jafntefli.
Ísland mætti Frakklandi síðast í 8-liða úrslitum Evrópumótsins þar í landi sumarið 2016 þar sem Frakkar fóru með 5:2-sigur af hólmi.