Ólst upp hjá Marseille og nú kominn til ÍBV

Eyjamenn fá liðsstyrk.
Eyjamenn fá liðsstyrk. mbl.is/Golli

Karlalið ÍBV í knattspyrnu hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi keppnistímabil, en félagið hefur samið við franska framherjann Guy Gnabouyou til næstu tveggja ára.

Þetta staðfestir Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, við fotbolti.net þar sem hann lýsir Gnabouyou sem kröftugum framherja. Hann er 28 ára gamall og hefur meðal annars verið á mála hjá Marseille í Frakklandi. Síðast spilaði hann með Torquay á Englandi.

Gnabouyou á jafnframt að baki einn leik með U21 árs landsliði Frakklands. Hann hefur m.a. leikið með Inter í Finnlandi, Sliema Wanderers á Möltu, AEL Kalloni í Grikklandi og frönsku liðunum Paris FC og Orléans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert