Enskur framherji í ÍBV

ÍBV fékk liðsstyrk í dag.
ÍBV fékk liðsstyrk í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Enska knattspyrnukonan Shameeka Fishley gekk í dag í raðir ÍBV frá Verona á Ítalíu. Félagsskiptaglugginn lokaði í síðustu viku en ÍBV skilaði öllum gögnum inn áður en glugginn lokaði og í dag voru félagsskiptin staðfest.

Fishley er 24 ára framherji sem lék með Sindra í 1. deildinni síðasta sumar. Hún skoraði þá sex mörk í 17 leikjum.

Fishley er uppalin hjá Chelsea á Englandi og lék í bandaríska háskólaboltanum í þrjú ár, áður en hún gekk í raðir Sindra og síðan Verona. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert