Auðvelt hjá KR í Keflavík

Björgvin Stefánsson skoraði fyrsta mark leiksins.
Björgvin Stefánsson skoraði fyrsta mark leiksins. Ljósmynd/Víkurfréttir/Páll

Keflavík og KR mættust í Pepsi deild karla í fótbolta kvöld og skemmst frá því að segja sigraði KR nokkuð auðveldlega, 4:0.

Strax á 1. mínútu leiksins komust Komgar í 1:0 og svo aðeins fjórum mínútum síðar voru þeir komnir í 2:0 og voru þar að verki Björgvin Stefánsson og André Bjerregard. 

Pablo Punyed bætti svo við þriðja markinu áður en haldið var til hálfleiks. Sama einstefna var í leiknum í seinni hálfleik þegar Pálmi Rafn Pálmason bætti við fjórða marki KR og sigurinn nokkuð öruggur og auðveldur að þessu sinni gegn lánlausum Keflvíkingum. 

Keflavík 0:4 KR opna loka
90. mín. Frans Elvarsson (Keflavík) á skot framhjá Skot hátt yfir markið. Þarna krystalaðist leikur Keflvíkinga þetta kvöldið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert