Valur tók á móti KR í sjöttu umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld en leiknum lauk með 4:0 sigri heimakvenna. Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir augað en liðin skiptust á að láta boltann ganga með mikilli þolinmæði á milli sín í varnarlínu og á miðsvæðinu. Það var ekki fyrr en markamínútan rann upp að Crystal Thomas náði að sprengja upp varnarlínu Valsmanna og átti frábært skot sem Ingibjörg í marki KR varði út í teiginn. Þar var Elín Metta Jensen mætt eins og haukur, tók boltann og setti þéttingsfast í fjærhornið, 1:0 fyrir Valskonur rétt fyrir hálfleik.
Leikurinn var hnífjafn fyrstu tuttugu mínúturnar í seinni hálfleik en enn virtist vanta einhvern kraft í sóknirnar hjá báðum liðum. Þegar Guðrún Karítas Sigurðardóttir kom inn í stað Ásdísar Karenar á 76. mínútu gerðist eitthvað hjá Valsliðinu. Fyrst var það hún sjálf sem skoraði eftir frábæran undirbúning Málfríðar Önnu á 77. mínútu, 2:0. Fjórum mínútum seinna var Guðrún Karítas aftur á ferðinni með þrumuskoti af vítateigslínunni og staðan 3:0. Ótrúlega sterk innkoma hjá henni, og gerði mikið fyrir leik Valsmanna. Á sama tíma virtist KR aðeins missa dampinn eftir fínan varnarleik og ágætis spilkafla inn á milli.
Að lokum var það Elín Metta sem skoraði fjórða og síðasta mark leiksins eftir fínan undirbúning Stefaníu Ragnarsdóttur. Lokatölur leiksins 4:0 fyrir Val, á móti varnarsinnuðu liði KR kvenna. Valskonur er í þriðja sæti deildarinnar með 15 stig, þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks en KR er á botninum með 3 stig eftir fyrstu sex umferðirnar ásamt FH sem tapaði fyrir Breiðablik í kvöld.